[Dídí]
Benedikt hvers vegna líð ég svo létt
Laus í loftinu?
[Benedikt Búálfur]
Þett'r staðurinn minn
Milli heimanna
Dáldið eins og draumarnir
[Dídí]
Hvernig eins og draumarnir?
[Benedikt Búálfur]
Sjáðu nú
Hvorki kerti né ljós
Lýsa leiðina
[Dídí]
Samt er bjartar'n
Sólríkum degi á
[Benedikt Búálfur]
Já, þett'r hellirinn
[Dídí]
Er þetta litahellirinn?
[Benedikt Búálfur og Dídí]
Þér finnst þú vera frjáls
Sem fugl í loftinu
Og ég er ekkert hrædd úuu
[Dídí]
Ég er óttalaus
[Benedikt Búálfur]
Dídí mín, sjáðu litina glitra
Á veggjunum
[Dídí]
Furðurveru'og fólk inn'í veggjunum
Eins og í draumunum
[Benedikt Búálfur]
Eins og í draumunum
[Benedikt Búálfur og Dídí]
Mér/þér finnst ég/þú vera frjáls
Sem fugl í loftinu
Og ég er ekkert hrædd úuu
Og ég er ekkert hrædd nei nei
[Dídí]
Ég er óttalaus
[Þulur]
Benedikt og Dídí stíga út úr hellinum og við blasa álfheimar. Dídí hefur aldrei áður séð eins fegurð og litadýrð! Og Benedikt gefur henni galdra svo hún getii talað við allt og alla í álfheimum. En Dídí hún blindast örskamma stund af galdraduftinu og missir af Benedikt sem er lagður af stað lengra inn í álfheima. Allt í stekkur fram mjög skrítin vera! Þetta er engin annar en Jósafar mannahrellir. En hans hlutverk er að hrella allt mannfólk sem villist til álfheima