Alvaldur
Alvaldur konungur neðra
Upphimins sólir, þig tignandi
Fara sinna ferða
Himnanna tjöld, geimanna fjöld
Lofa þig lávarður neðra
Á himnum í heiði ofar
Þig hrapandi stjörnumergðin lofar
Hlekkjaðir vér erum, undan andavaldi
Við hettu þinni klæðumst þjáðir
Undir skyggðarhaldi
Hryggðarsporin, herra minn
Í neðraríki leið mig inn
Ég sá himnana rifna;
Úr gapandi tóminu
Teygðu sig angar, fálmarar
Í hinum ónáttúrulegustu litum
Sem engin hafa nöfn
Þar við fallinna englaskarans
Fölsku sigursöngva
Þér hörpur óma í hverfulum
Feigðarboðahljóma
Gegnum svarta sali
Til hins neðra
Sálir þessar munu aldrei
Til sinna feðra safnast