Í borginni standa göturnar hálfauðar
Og ráðhúsið það húkir hnípið
Alltof stórt en pasturslítið
Endurnar sjálfdauðar
og bæjarstarfsmenn læðast þöglir um í keng
Og helgarfeður teyma helgarbörn í spreng
Er ekki kominn tími á að bregða sér frá
Gefa sér tíma og hræra í smá
Bílalest út úr bænum
– héðan í einum grænum?
Er ekki kominn tími á að bregða sér frá
Fara og reyna að slaka aðeins á
Í bílalest út úr bænum
– með blakandi tungu í blænum?
Við þjóðveginn standa kindurnar lifaðar
Þær mæna brostnum bænaraugum
Líkar skýjum eða draugum
Ætli þær vilji far?
Og um í sólskininu sveima flugurnar
Þær leggja kollhúfur og bjóða góðan dag
Er ekki kominn tími á að bregða sér frá
Gefa sér tíma og hræra í smá
Bílalest út úr bænum
– með blakandi tungu í blænum?
Er ekki kominn tími á að bregða sér frá
Fara og reyna að slaka aðeins á
Á hóflegum hraða ég vil fá að fara
Þar líður mér best, þar kann ég við flest allt
Við flest allt
Og slaka á
Uppspretta er yndis alla leið
Útvarpið í sjálfrennireið
Er ekki kominn tími á að brеgða sér frá
Gefa sér tíma og hræra í smá
Bílalest út úr bænum
– héðan í einum grænum?
Er еkki kominn tími á að bregða sér frá
Fara og reyna að slaka aðeins á
Í bílalest út úr bænum
– með blakandi tungu í blænum?
Er ekki kominn tími á að bregða sér frá
Gefa sér tíma og hræra í smá
Bílalest út úr bænum
– héðan í einum grænum?
Er ekki kominn tími á að bregða sér frá
Fara og reyna að slaka aðeins á
Á hóflegum hraða ég vil fá að fara
Þar líður mér best, þar kann ég við flest allt
Við flest allt
Og slaka á